vá strax önnur fćrsla...

10. desember 2007 klukkan 14:49
HEhe vááá...nostalgía og kjánahrollur!!!! Okei ég var að "læra" fyrir eðlisfræðipróf og rakst á þetta á netinu.

http://youtube.com/watch?v=zEzh10_xoqw 

pælið í því, þetta var ein uppáhaldshljómsveitin mín á þessum tíma og hvaða stelpa kann ekki barbie girl lagið!! Öll þessi ár hef ég aldrei pælt neitt rosalega í þessu lagi, ég meina þetta var hresst og skemmtilegt lag sem gaman var að syngja...En vá pælið í því að við höfum verið að syngja þetta þegar við vorum litlar...hér koma nokkrar setningar..

you can brush my hair, undress me everywhere....I´m a blond bimbo girl in the fantasy world. Dress me up make it tight I´m your dolly......svo seinna syngur hann kiss me here, touch me there hanky panky. You can touch you can play if you say; I´m always yours...


og hver getur staðist þennan hönk :P

hehe varð að deila þessu með ykkur...skrýtið samt að feministar hafi ekki sprungið yfir þessu lagi, kanski hafa þeir gert það og við bara ekki tekið eftir því afþví að við vorum svo ungar....hver veit.
En ég er allaveg alveg viss um að ég lít á þetta lag með allt öðrum augum heldur en ég gerði fyrr....þó ég hafi enn gaman af því að syngja mér...I´m a barbie girl, in a barbie wold...tralallala

Jæja ætla að halda áfram að læra eðlisfræði :S ekki að ganga!!!!

Mikil gleđi og mikiđ fjör :D

09. desember 2007 klukkan 16:53
Já það er komin lítil prinsessa í heiminn. Enn er ekki búið að opinbera nafn hennar..(pabbi kallar hana samt Hrafnfríði eða eitthvað álíka hehe) fyrir heiminum en þangað til mun hún kallast grooby gellan, snúllan, músla, mýsla, ómarsdóttir, írisardóttir eða einfaldlega prinsessan. Já það er rétt..hún Íris mín var að eignast dóttur..kom í heiminn núna 6.desember kl: 17.15 og var 49 cm og 13 merkur.

Þeim mæðgum heilsast vel og allt er ógeðslega gaman :D Við stelpurnar getum ekki beðið eftir því að fá að hitta þessa krúttlegu fjölskyldu :D
Bendi á grooby síðuna til að skoða myndir af gellunum!

Annars er lítið að frétta af mér, ég er búin að loka mig inn í skólanum hennar mömmu til að læra eðlisfræði (er að fara í prófið á þriðjudaginn eðl 203). Þetta er ekki mín sterkasta grein og ég lærði eiginlega ekkert í gær þannig að ég ákvað að vera ströng við mig. Er hérna með fullt af kertaljósum (því það er svo kalt) og jólatónlist og eðlisfræði..ég get sagt ykkur lífið GERIST betra. hehe. Annars verð ég komin í jólafrí kl. 12 á þriðjudaginn jejj gleði gleði. Ætla að vinna á lyngás um jólin byrja kl. 12 á miðvikudaginn og svo bara mínar vaktri í hagkaup ;)...nennti ekki að vinna þar öll jólin, þau 3. í röð. En já svo þarf maður að fara að skrifa jólakortin (ætla actually að senda þau í ár ;)) og kaupa jólagjafir, skreyta og koma sér aftur í jólaskapið....var í því í nóv þegar við byrjuðum að æfa jólalögin en er svona að fara að detta úr því :(....en ég redda þessu.


vá kemst nú eiginlega í jólaskap við að sjá þetta æðislega jólatré..

En já ætla að halda áfram að læra eðlisfræði..hreyfifræði, bylgjufræði, hringhreyfingog fleira :S

Og réttur dagsins er.....

05. desember 2007 klukkan 17:47
Réttur dagsins er soðinn haus með ýmsu meðlæti eins og + og - sósu. Meðlætið er batman, pýþagóras og svo smá tvinntölum stráð yfir til að auka bragðið. Já ég er sem sagt að læra fyrir stærðfræðipróf (stæ 603) sem ég er að fara í á morgunn. Hausinn á mér fer að segja pass en ég er að hvíla hann núna og þannig leyfa ykkur að heyra hversu soðin ég er orðin :P

og greinilega með sítrónu líka :P

Ég gerði mikla uppgötvun í dag, þegar ég hvíldi aðeins heilann aðeins á pólformum og karteskum hnitum. Ég var nefnilega að fá í hendurnar nóturnar af Sinfóníu nr. 1 eftir Beethoven (sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna er að fara að spila þetta) og ég hugsaði með mér hey gæti verið að við eigum til plötu með þessu. Ég fór niður í stofu og kíkti í grammafónsplötu hilluna og viti menn geri ég ekki þessa merku uppgötvun. Ekki nóg með að við eigum 1. sinfóníu Beethovens heldur eigum við fullt að öðrum perlum eins og árstíðirnar hans Vivaldi, sónötur með Mozart og full fullt fleira. Ég rakst á nöfn eins og vivaldi, mozart, beethoven, corelli, shubert, hendel og fleiri...og ekki bara eina með hverju nafni heldur heilu söfnin. Nú segja kanski einhverjir já hvað..ekkert mál við eigum fullt af þessu. Það er ekki það sem ég er að meina, það kom mér bara svo á óvart að við ættum þetta. Ég vissi að við ættum eitt mozart safn en svo hélt ég að afgangurinn væri allt írskar þjóðlaga plötur, bítlarnir og smokie eða eitthvað.
Mamma og pabbi hlusta nefnilega ekkert gífurlega mikið á klassíska tónlist en við börnin höfum alveg fengið þessa blessuðu írsku þjóðlagatónlist beint í æð ásamt danskri tónlist (kim larsen og fleiri). En já þetta var reyndar rosalega mikið á víxl þannig að ég er að pæla að eyða smá hluta af fríinu mínu í að þurka af þessum perlum og raða þeim (sínfóníurnar hans beethovens saman og verkin hans mozart saman ekki sitt á hvað).
Reyndar gerði ég líka þá uppgötvun að nálin á grammafóninum okkar er brotin þannig að ég gat ekki hlustað ... mér til mikilla vonbrigða. Hehe reyndar kanski svoltið gott því jii ég yrði örugglega geðveik ef ég myndi læra fyrir stærðfræðipróf og t.d. hlusta á árstíðirnar með vivaldi (t.d. bara sumarið) ef þið viljið átta ykkur á því þá getiði hlustað á byrjunina hér http://youtube.com/watch?v=pe-MIDDfckw&feature=related og þið mynduð kanski átta ykkur á því hvernig ég yrði :P


einhvern veginn svona líklegast. :P

en jæja best að halda áfram að læra þessa stærðfræði...

Náttúrulega bara cool!!!

16. nóvember 2007 klukkan 19:21
Okei íslensku kennarinn okkar benti okkur á þetta um daginn og ég bara varð að posta þessu hérna, því þetta er bara svo cool...face á rasista!!!

The white man said, "Colored people are not allowed here."
The black man turned around and stood up. He then said:
"Listen sir....when I was born I was BLACK,"
"When I grew up I was BLACK,"
"When I'm sick I'm BLACK,"
"When I go in the sun I'm BLACK,"
"When I'm cold I'm BLACK,"
"When I die I'll be BLACK."
"But you sir."
"When you're born you're PINK,"
"When you grow up you're WHITE,"
"When you're sick, you're GREEN,"
"When you get cold you turn Blue"
"When you go in the sun you turn RED,"
"And when you die you turn PURPLE."
"And you have the nerve to call me colored?"

The black man then sat back down and the white man walked away...


þetta er bara svo mikið face..elska það...en já allavega það var nú bara þetta sem ég vildi deila með ykkur. ;)


öll dýrin (hehe ekki í beinni merkingu) í skóginum eiga að vera vinir..þrátt fyrir mismunandi litarhátt...

Já ég held ţađ nú...

09. nóvember 2007 klukkan 22:54
Heyriði það var bara svoltið sem gerðist í dag sem kallaði á bloggfærslu...einhverjum á pottþétt eftir að finnast þetta asnalegt..so what..hættu þá bara að lesa..hehe face. Nei okei sorrý, er búin að vera í rosa leiðinlegu skapi í dag, vaknaði með hausverk og þegar hann fór koma bara fýla og vont skap. En hey það er ekki það sem ég ætlaði að blogga um.

Okei um 6 leytið í dag þá var ég að koma heim, eftir að hafa verið í skólanum, farið í world class í kringluna að skila tímariti og leigja bók og fullt vesen. Allt í lagi ég var að deyja úr hungri og ákveð að fá mér eina samloku og ákveð í leiðinni að kveikja á sjónvarpinu, bara upp á fönnið því ég horfi svo sjaldan á það. Mér til mikillar gleði er barnaefnið í sjónvarpinu, en eftir að ég byrjaði í ísl 633 þá pæli ég svoltið meira í svona barnabókum, barnasjónvarpsefni og fleiru. Alla vega þá datt ég inn í þennan þátt sem heitir Litlu snillingarnir ,,little einsteins" sem er framleitt af Disney og OMG.. fyrirgefið að ég noti þetta orð en vá hvað ég hélt að ég myndi ekki hætta að hlæja.


 
Okei þátturinn fjallar um fjóra krakka, ein ljóshærð stelpa, rauðhærður strákur með gleraugu, svartur strákur og svo asísk stelpa. Þau (eða rauðhærði strákurinn) eiga rautt geimfar sem kallast Rauðka. Rauðka gengur ekki fyrir bensíni heldur nótum dadadadammm. Okei þátturinn byrjaði á því að þau kynntu eina tegund af einhverskonar teikningum, í þetta sinn japanskar teikningar. Því næst kynntu þau eitt tóndæmi og höfundinn á bak við það. Okei svo þurfti að fylla Rauðku af ,,bensíni" og var kynnt til leiks mismunandi hraðabreytingar, reyndar í lögum en það var tengt við mismunandi hraða sem Rauðka gæti farið á. Þetta var sem sagt adagio (hægt), moderato (miðlungs), allegro (hratt) og svo presto (mjög hratt). Allavega svo hitta þau grísina þrjá. Hihi þeir eru snilld, þeir voru að fljúga litlum rellum. Reyndar skrýtið en þeir oinka sjaldnast, oftast heyrðist bara svona þverflautu sóló þegar þeir eiga að ,,tala". Allavega svo bila þessar blessuðu flugvélar og festast í ákveðnum gírum adagio, moderato og allegro..maður heyrir líka alltaf ákveðin tónstef sem eru spiluð á þessum hraða hjá hverju svíni. Svínin fljúga bara og ráða ekkert við flugvélarnr og að sjálfsögðu þurfa krakkarnir að bjarga veslings grísunum. Adagio svínið finna þau í perú, moderato svínið í japan (með hjálp dýra á svona mynd eins og var kynnt í  byrjun) og loks allegro svínið þurfa þau að bjarga lengst út í geim. Ekki það að þetta sé nógu rugglað heldur þá brestur ljóshærða stelpan alltaf í söng þegar þau eru að fara að bjarga svíni (sem sagt þegar þau eru á leiðinni að bjarga einhverju af svínunum) og ég veit ekki hvort það er tilviljun en hún er með míkrafón á sér. Svo þarf svarti strákurinn stundum að grípa í eitthvað hljóðfæri og spila á það. Þegar þau eru búin að bjarga svínunum fara þau heim og í endann þegar verið er að kveðja fer asíska stelpan allt í einu að dansa og grípur að einhverjum óskiljanlegum ástæðum tertu...sem þeim finnst rosa fyndið.



okei jú jú það er hægt að læra fullt af þessum þætti, rosalega mikið um tónlist, hraðabreytingar, mismunandi höfunda, lög, svo var smá landafræði troðið þarna inn í og eitthvað. EN ÞETTA VAR SVO SÚÚÚÚR ÞÁTTUR...ÞAÐ VAR ÓTRÚLEGT. Þarna sat ég geðveikt ein inn í eldhúsi með samlokuna mína og skellihló..og aðsjálfsögðu klappaði ég taktinn með þegar þau báðu um það..,,hey krakkar hjálpiði rauðku núna við að fljúga á adagio með að klappa taktinn á hnén á ykkur". Já það var hreyfing í þessu líka, þegar Rauðka flaug á adagio þá klappaði maður á hnén, moderato á magann, allegro þá klappaði maður á axlirnar og loks í eina skiptið sem Rauðka fór á presto átti maður að setja hendurnar eins langt upp í loft og maður gat og hrista sig allan eins og brjálaður væri....eins og ég segi SÚÚÚÚRT.

pćlingar.

25. september 2007 klukkan 16:38
já ég ef nú lítið bloggað undanfarið en það er einfaldlega því ég er svo sjúklega upptekin...kem seint heim og þá á maður oft eftir að læra. Það er ágætlega mikið að gera í skólanum, sérstaklega því ég er í stúdentsritgerðaráfanga, hann tekur smá á. En ég er líka í öðrum valfögum sem er ógeðslega skemmtileg. Ég er t.d. í barnabókmenntum, rosa kózý t.d. þegar hún er að lesa bækur fyrir okkur, svona smá eins og nestis tímarnir í Kópavogsskóla :D Svo er ég líka í táknmáli, það er nú allt að koma. Þetta er örugglega eini tíminn sem maður er alltaf með 100% einbeitingu. Ef þú missir af einhverju þa ertu ekki í neitt rosa góðum málum. En já ég er nú alveg að verða það sleip að ég var spurð í morgunn þegar ég var að taka strætó, af einum heyrnalausum eða heyrnaskertum, hvort þetta væri S2 og ég gat náttla svarað honum og svolleiðis....sjúklega sátt. Svo er ég líka í þroskasálfræði, það er fínn áfangi. Við fórum t.d. um daginn á þjóðminjasafnið að soða sýninguna undrabörn, ohh það var æði. Ég og lilja upplifðum náttla sýninguna aðeins öðruvísi en margir aðrir því stór hluti af krökkunum á sýningunni eru krakkar sem við höfum unnið með síðastliðin 2 sumur. Mjög skemmtilegt að sjá svona professional ljósmyndir af þeim...elskunum okkar.
Annars er maður bara upptekin, ef það er ekki skólinn þá er það fiðlan eða kórinn, afró, baðhúsið, vinna, lærdómur eða reyna að eiga sér eitthvað líf með vinunum.

Það er reyndar eitt sem ég hef verið að pæla í. Ég vinn nú í Hagkaup eins og margir vita og þar verð ég nú vör við ágætlega mikið af þjófnaði og þá sérstaklega oft í minni deild.
Það sem einkennir þennan þjófnað er nú mest Pólverjar, mér þykir leiðinlegt að segja þetta. Skohh áður en ég segi þetta þá verð ég að segja að ég er að reyna að alhæfa sem minnst, það eru margir pólverjar sem eru yndislegir og þá t.d. gamli þýskukennarinn minn en það eru margir pólverjar sem ég ÞOLI EKKI.
Þeir koma þarna í hópum með tómar töskur og eru geðveikt laumulegir. Maður þarf að fylgjast með þeim, yfirmennirnir benda okkur meira segja á að fylgjast með svona pólverja hópum. Leiðinlegustu vaktirnar eru þegar rúturnar frá kárahnjúkum koma (veit ekkert hvort þetta er rétt en við köllum það þegar margir hópar af pólverjum koma) og þá er maður fastur við að fylgjast með þeim og ég get sagt ykkur, þeir standa nánast bara á einum stað og það er hjá leðurjökkunum, en þeir eru með því dýrasta sem þú kaupir í herradeildinni í hagkaup.....varð bara að koma þessu frá mér, þ.e.a.s. að ég þoli þetta ekki.

en jæja ætli maður fari ekki að læra..svo ég geti hitt gellurnar í kvöld :D .........

Múhahahaha!!!!

06. september 2007 klukkan 17:03
Sjúklega var þetta gaman.

Á hverju ári þurfa 4 bekkingar að þola 1...það er að litlir ógeðslegir illa lyktandi busar með graftarbólur komi og skríði inn í fallega skólann okkar og mengi allt sem þar er...en á hverju ári fá 4 bekkingar líka að gera svoltið...BUSA!!

Hehe já ég var að busa og vá hvað þetta var gaman, þó ég geti ekki gert upp á milli hvort var skemmtilegra að vera busi eða busa. En já þemað í ár var crazy læknar..við vorum allt frá skurðlæknum og niður í hjúkkur, alblóðug með sprautur, hvít í framan með bauga og blóð út um allt.


má ég taka úr þér blóðsýni...múhahah

Þar sem ég er í kvennaskólanum sem er yndislegur skóli og vill engum neitt illt þá er alltaf reynt að hafa þetta á öruggu nótunum og reynt að hafa þetta sem skemmtilegast. Ég man að mér fannst sjúklega gaman þegar ég var busuð, þótt að ég hafi átt að vera kind og slátrararnir öskruðu á mig eins og ég veit ekki hvað. Og hversu góð var tilfinningin eftir að hafa fengið tjarnarvatnið yfir sig að taka í hönina á eldri nemanda og fá snakk og kók....þetta var æði.

En nú hef ég prufað að busa og þetta var sjúklega gaman, öskraði frá mér röddina á þessa ágætu grey á meðan ég sprautaði vatni á þau öll....vonandi verða þau ekki fárveik :S

Mæli með því að þið kíkið á mbl.is http://mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1289908 og kíkið á fréttina um okkur....we are scary!!


hópurinn að gera sig tilbúinn...áður en *gervi*blóðið kom til sögunnar.

Vá liggur viđ ár og aldir síđan ég skrifađi síđast..

25. ágúst 2007 klukkan 19:05

Jáá þá er sumarið búið, maður bara byrjaður í skólanum og allt komið í sinn vanagang aftur. Ég veit að það er langt síðan ég skrifaði síðast, en hey common ég ætlaði ekki að fara að blogga í útskriftarferðinni minni, ég hafði meira og skemmtilegra að gera...talandi um útskriftarferð..DJÖFULL VAR GAMAN. Við gerðum geðveikt mikið og það var bara sjúklega skemmtilegt, allavega að mínu mati...minnistæðast

* öll nöfnin á drykkjunum sem við gerðum
* bingó dansinn okkar steinunnar ;)
* froðupartýin á Areena
* siglingin með árgangnum
* beech club
* strandarpartýið
* quad safari
* leðjubað
* tyrkneskt bað
* LEIGUBÍLARNIR
* pamukale
* tyrkneski teppagaurinn sem talaði dönsku
* vatnspípurnar
* ringo

og vá ég gæti haldið endalaust áfram...en ég nenni því ekki:P spyrjið mig bara ef það er eitthvað sem þið viljið vita um ferðina..sem var sjúklega skemmtileg.
En já núna er maður aftur byrjaður í skólanum, komin á 4 ár þannig að maður er bara elstur, var einmitt á böðlafundi í gær..MÚHAHAHAHA. Líkar bara ágætlega við stundaskrána mína, nýja strætókerfið og jámm ég er bara sátt.
Eina sem er að angra mig er að ég nenni ekki að vinna í Hagkaup lengur og það er ekki mín sterkasta hlið að segja upp...þannig að ég þarf pínu að manna mig upp í það :P en það kemur allt með kalda vatninu.
En jæja ég ætla að vera leiðinlega týpan og ekki skrifa meira því ég er eitthvað svo þreytt eftir vinnuna.....so long :P

ći common ţađ er sumar :P

22. júlí 2007 klukkan 16:38
Hehe það líður alltaf þessi skemmtilega langi tími á milli blogga hjá manni, en common það er sumar og maður nennir sjaldan að blogga á sumrin, nema að maður sé að gera eitthvað úber skemmtilegt eins og að vera í útlöndum...sem ég er btw að fara að gera á föstudaginn :D
En já lítið af frétta af manni, bara að vinna og hanga með vinunum. Fór á staffadjamm á föstudaginn sem var frekar skrautlegt :P Halló 20 stelpur og einn strákur, allir eiginlega í glasi nema strákurinn (hehe hann var í bolla *kaffibolla*) og jú hún elsku sigrún sem var hinn æði skemmtilegi driver. En jámm við vorum með glimmer, vaselín, vodka og hehe skemmtilegan upptakara og jámm ég get bara sagt eitt STUUUÐ!!!

  = Party!!

Jámm svo var bara videogláp með lilju og sigrúnu á laugardeginum með nammi og gos mmm. Horfðum á rugl mynd um gaura sem ætla að búa til klámmynd, erum greinilega ekki á alveg sömu bylgjulengd og þeir því við skildum hvorki upp né niður í þessari mynd. En svo horfðum við á eitthvað meira við okkar hæfi :P hehe litlu hafmeyjuna 2 hehehe.
En já það sem er helst að frétta af mér er að núna um daginn breytti ég matarræðinu mínu til muna..núhh spyrja kanski einhverjir og ég skal skohh segja afhverju. Það var þannig að mamma vissi af einhverjum kalli í heilsubúðinni í Hafnafirði sem hefur hjálpað vinkonum hennar mikið með því að gera smá tilraunir á þeim og séð hverju þær eru með ofnæmi fyrir, t.d. ein sem má ekki borða tómata og eitthvað. Allavega mamma var úber spennt fyrir þessu og stakk upp á því að við skelltum okkur, ég alveg jú jú gaman að tékka á einhverju svona dóti. Allavega við fórum á föstudaginn og þetta var bara gaman hehe. Sat í svona lazyboy og hélt í stöng svo strauk hann einhverju dóti um puttana á mér og eitthvað og tékkaði á einhverjum efnum...nenni ekki að útskýra betur hér, getið bara spurt mig ;) Allavega kom í ljós ýmislegt, bæði sem við höfðum grun um og svo eitthvað sem ég hafði ekki hugmynd um. Ég er allavega með ofnæmi fyrir hundum, köttum (vissi það) og hömstrum. Svo er ég með lactosa og glúten óþol. Það þýðir að ég má ekki borða mjólkurvörur og hveiti, bygg, rúg og hafra....vááá. Núhh heldur einhver bara rugl svind á þér elskan, en ég skal segja ykkur eitt...þetta passar mjög vel. Skohh við höfum vitað lengi að ég er með óþol fyrir mjólkurvörum, bara aldrei gert neitt í því (en kallinn bað mig að hætta að nota þær, skipta yfir í soya, færi betur með mig) hef verið með útbrot á höndum út af því frá því ég var lítil, en þau skánað til muna eftir að ég minnkaði mjólkurneyslu til muna. En já þetta með glúten óþolið passar líka vel. Því til dæmis þegar ég fer til útlanda þá minnka ég mjólkurneyslu en eyk brauðneyslu. Húðin skánar en mér verður alltaf illt í maganum í útlöndum. Verð alltaf með uppþemdan maga eftir nokkra daga (allar pizzurnar og brauð í staðin fyrir jógúrt) og hreinlega liðið illa í mallakútnum. En já mæli alveg með því að fara til þessa manns, hann fann líka að ég var með ristilvandamál sem þýðir að ég brenn mun hægar heldur en eðlilegt er, en þetta ætti að hjálpa.
Þannig að ég og mamma fórum strax og keyptum soya mjólk (ojj) og soya jógúrt (mmmsem er sjúklega gott) og spelt kex (mm það er líka gott) og mamma bakaði spelt banana brauð fyrir mig og sollis. En þetta tekur smá tíma að venjast en ég er að vona að ég geti samt haft þetta sem minn lífstíl, því það er jú betra ef þetta fer betur í magann á mér. Ég má samt alveg fá mér einn og einn hamborgara og pizzu..bara ekki mikið af þessu, helst sem minnst.


skohh mm glútenlaus kaka                                                  og soya mjólk......mmmm hehe

En jámm farin að gera eitthvað annað....heyrumst síðar :P....er samt að fara til Tyrklands á föstudaginn þannig að so long suckers :P hehe nei djók!1

ći common ţađ er sumar :P

22. júlí 2007 klukkan 16:38
Hehe það líður alltaf þessi skemmtilega langi tími á milli blogga hjá manni, en common það er sumar og maður nennir sjaldan að blogga á sumrin, nema að maður sé að gera eitthvað úber skemmtilegt eins og að vera í útlöndum...sem ég er btw að fara að gera á föstudaginn :D
En já lítið af frétta af manni, bara að vinna og hanga með vinunum. Fór á staffadjamm á föstudaginn sem var frekar skrautlegt :P Halló 20 stelpur og einn strákur, allir eiginlega í glasi nema strákurinn (hehe hann var í bolla *kaffibolla*) og jú hún elsku sigrún sem var hinn æði skemmtilegi driver. En jámm við vorum með glimmer, vaselín, vodka og hehe skemmtilegan upptakara og jámm ég get bara sagt eitt STUUUÐ!!!

  = Party!!

Jámm svo var bara videogláp með lilju og sigrúnu á laugardeginum með nammi og gos mmm. Horfðum á rugl mynd um gaura sem ætla að búa til klámmynd, erum greinilega ekki á alveg sömu bylgjulengd og þeir því við skildum hvorki upp né niður í þessari mynd. En svo horfðum við á eitthvað meira við okkar hæfi :P hehe litlu hafmeyjuna 2 hehehe.
En já það sem er helst að frétta af mér er að núna um daginn breytti ég matarræðinu mínu til muna..núhh spyrja kanski einhverjir og ég skal skohh segja afhverju. Það var þannig að mamma vissi af einhverjum kalli í heilsubúðinni í Hafnafirði sem hefur hjálpað vi

Ég!!

jámm ég er 19 ára stúlka í Kópavoginum sem heitir Sigríđur Elísabet...Sigga Beta ;) Ég stunda nám viđ Kvennaskólann í Reykjavík og er í 4-NS sem ţýđir ađ ég er á Náttúrufrćđibraut međ stćrđfrćđisviđi. Ég ćfi líka á fiđlu í Tónlistarskóla Kópavogs og er svo í kór Kvennaskólans ásamt ţví ađ vera í árbókarnefndinni. Ég vinn líka í herradeildinni í Hagkaup í Kringlunni međ skóla ţannig ađ ţađ má segja ađ ég sé busy girl ;)

Auglýsing

2007

11. des - Eđlisfrćđipróf
12. des - Byrja aftur á Lyngás :D
13. des - Jólahittingur Grooby gella :D
20. des - Einkunna afhending, tónleikar, söngur í Ikea.
23. des - Ţorláksmessa
24. des - Ađfangadagur :D
25. des - Jóladagur
26. des - Annar í Jólum
31. des - Gamlársdagur




Afmćlisbörnin

10. des - Sigrún 19. ára
17. des - Fjóla 20. ára

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...